Já senn líður að jólum…

…nú gæti þessi fávísi meðaljón af götunni verið að hugsa með sér

“Jólum??? þau eru löngu liðin…. hvað er eiginlega í gangi hjá þessum göndlum?”


myndin tengist grein óbeynt…

Og það er bara í góðu lagi því Göndlunum gæti bara hreinlega ekki verið meira skítsama hvað einhver almennur plebbi út í bæ er að hugsa.  En til að útskýra málið þá eru jól hjá Göndlum þegar hægt er að fara að slægja fisk út í guðsgrænni náttúrunni án þess að eiga það á hættu að missa fingur (eða aðra limi) veiðandi fisk í gegnum vök í bleytu frosti og vosbúð…  Göndullinn þrífst best í hlýju og röku umhverfi… þó að hann lætur bjóða sér flest ef eitthvað bitastætt hangir á spýtunni…

Þó ekki fáist uppgefið hvar Göndlar halda aðalfund þá má geta að þangað liggur enginn þjóðvegur… eiginlega enginn vegur yfir höfuð, fordæmi eru fyrir því að göndlar hafi þurft að vaða snjó, krap, drullu og fljótandi hraun upp í handakrika síðustu kílómetrana að fundarstað… það gefur því auga leið að sérstakra faratækja gerist þörf.

Meðfylgjandi kennslumyndband er frá aðdáenda vestanhafs sem vildi deila sinni visku með lesendum, þó að farartækið sjálft (sjá myndband) sé ekki til mikilla stórræða þá mætti nota prinsippið á betur útbúna jeppa… (til dæmis lödu sport)

This video was embedded using the YouTuber plugin by Roy Tanck. Adobe Flash Player is required to view the video.
Við þökkum honum fyrir framtakið en fordæmum hann jafnframt fyrir að vera giftur systur sinni…

Þriðjudagur, apríl 13th, 2010 Almennt Comments Off

Halltu feisi maður!

Þegar menn fiska þá er mikið atriði að halda kúlinu, oft gleyma menn sér og verða bara hálf kjánalegir út í á… fara jafnvel að bora í nefið eða eiga við sig og halda að enginn sé að fylgjast  með.  Staðreyndin er reyndar allt önnur!

Í veiðibransanum er alltaf verið að fylgjast með þér og njósna um þig og hafa af þér veiðiþekkingu!

Hér er klassískt dæmi um mann sem heldur ekki kúlinu… skríkir eins og smástelpa og stynur eins og Stinni stinni…
This video was embedded using the YouTuber plugin by Roy Tanck. Adobe Flash Player is required to view the video.

(Það er ekki óalgengt að menn gumsi óvart í vöðlurnar við veiðar, alvöru veiðimenn reyna þó að bæla niður allar stunur og svipbrigði… annað bara lítur ekki vel út)

Föstudagur, apríl 9th, 2010 Almennt Comments Off

Góðir Göndlar!

Smá tilkynning til fjelagsmanna!

Senn líður að aðalfundi! vinsamlegast bætið vöðlur og gerið gambrann klárann!

Föstudagur, apríl 9th, 2010 Almennt Comments Off
    No dates present
Hér halda fjelagsmenn Gönduls vefsetur. En þess ber að geta að þar sem Göndlar eru alvöru sveittir og illa lyktandi karlmenn sem líður hvergi betur en illa ölvaðir útí á að slátra fisk í stórum stíl, þá má ekki gera ráð fyrir að þeir séu hangandi hér á netinu við að uppfæra þennan vef. Enda varðar sauðsvartann almúgann andskotann ekkert um það hvað Göndlar eru að fást við...

Þó má leiða líkur að því að þeir séu nú útí mörkinni að veiða, nú eða ofaní kjallara að hnýta flugur og/eða gera að, útataðir í slori og viðbjóð!

Göndull er hámenningarfjelag með lágmenningu að leiðarljósi.